top of page

Er hvíld alltaf besta lausnin?

  • Jul 28
  • 2 min read

"Á ég ekki bara að hvíla mig frá hreyfingu

þar til verkirnir eru farnir?" er spurning sem sjúkraþjálfarar fá reglulega.

Í mörgum tilfellum getur stutt hvíld verið skynsamleg, sérstaklega fyrstu dagana eftir áverka eða þegar verkirnir eru miklir. En þegar frá líður er hreyfing oft mikilvægur hluti af bata.


Hvers vegna skiptir hreyfing máli?

Líkaminn er hannaður til að vera á hreyfingu. Þegar við forðumst alla hreyfingu í langan tíma geta liðir orðið stífari, vöðvar veikst og daglegar athafnir orðið erfiðari.

Það þýðir þó ekki að þú eigir að hunsa verkina eða "þjást í gegnum þá". Markmiðið er að finna hreyfingu sem líkaminn þolir og byggja hana upp smám saman.


Hvernig veit ég hvort ég sé að gera of mikið?

Smávægileg óþægindi við hreyfingu eru oft eðlileg og þurfa ekki að þýða að eitthvað sé að fara úrskeiðis.

Ef verkirnir aukast verulega, haldast miklu verri í marga klukkutíma eða daga eða hindra þig í að sinna daglegum verkefnum getur verið merki um að álagið hafi verið of mikið og að það þurfi að aðlaga æfingar eða virkni.


Þarf ég þá aldrei að hvíla mig?

Jú. Hvíld er mikilvægur hluti af bata, sérstaklega fyrstu dagana eftir meiðsli eða ef líkaminn gefur skýr merki um að hann þurfi á henni að halda.

En í flestum tilfellum er markmiðið að snúa smám saman aftur til daglegra athafna og hreyfingar, frekar en að bíða eftir að öll einkenni hverfi áður en þú byrjar aftur.


Hvenær er gott að leita til sjúkraþjálfara?

Ef þú ert óviss um hversu mikið þú mátt hreyfa þig, verkirnir lagast ekki eða þeir koma í veg fyrir að þú getir sinnt vinnu, heimilisstörfum eða áhugamálum getur verið gagnlegt að fá mat hjá sjúkraþjálfara.

Með réttu mati er oft hægt að finna leiðir til að halda áfram að hreyfa sig á öruggan hátt og styðja við bata.



 
 

Sendu okkur skilaboð

Þú getur haft samband með því að nota formið hér til hliðar eða senda póst á elja@eljan.is

Einnig má hafa samband með því að hringja í síma 5340015.

bottom of page