top of page

Gjaldskrá

Gjald fyrir sjúkraþjálfun hjá Elju sjúkraþjálfun tekur mið af gildandi gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og greiðslustöðu hvers skjólstæðings.
SÍ tekur þátt í kostnaði við allt að 6 meðferðarskipti á 12 mánaða tímabili án beiðni. Sé þörf á fleiri en 6 meðferðarskiptum þarf beiðni frá lækni eða sjúkraþjálfara á heilsugæslu til að greiðsluþátttaka SÍ haldi áfram. Greiðsluþátttaka SÍ fer eftir greiðslustöðu hvers og eins, sem hægt er að nálgast í réttindagátt SÍ.

Komugjald frá 1. september 2026
Frá og með 1. september 2026 leggja stjórnvöld komugjald á þjónustu sjúkraþjálfara. Komugjaldið er því ekki gjald sem Elja sjúkraþjálfun ákveður og rennur það upp í þann hluta meðferðarkostnaðar sem annars væri greiddur af Sjúkratryggingum Íslands.
Komugjaldið er samkvæmt núverandi upplýsingum:

​

  • 1.500 kr. fyrir einstaklinga með almenna réttindastöðu

  • 1.000 kr. fyrir ellilífeyrisþega

  • 500 kr. fyrir örorkulífeyrisþega og einstaklinga á endurhæfingarlífeyri

​

Komugjaldið bætist við þann hluta meðferðarkostnaðar sem skjólstæðingur greiðir samkvæmt greiðslustöðu sinni hjá SÍ. Heildargreiðsla skjólstæðings getur þó aldrei orðið hærri en heildarverð meðferðar samkvæmt gjaldskrá.

​

Börn og ungmenni
Greiðslur barna og ungmenna fyrir sjúkraþjálfun fara eftir gildandi reglum Sjúkratrygginga Íslands og þeirri réttindastöðu sem skráð er hjá SÍ.

​

Slys og styrkir stéttarfélaga

Þeir sem hafa orðið fyrir bótaskyldu slysi geta sótt um endurgreiðslu á kostnaði vegna sjúkraþjálfunar sem tengist slysingu hjá viðkomandi tryggingarfélagi.

Einnig taka mörg stéttarfélög þátt í kostnaði félagsmanna vegna sjúkraþjálfunar.

​

Frekari upplýsingar um greiðsluþátttöku og gildandi reglur má finna hjá Sjúkratryggingum Íslands.

​

Sendu okkur skilaboð

Þú getur haft samband með því að nota formið hér til hliðar eða senda póst á elja@eljan.is

​

Einnig má hafa samband með því að hringja í síma 5340015.

bottom of page