top of page

Er koddinn eða dýnan að valda verkjunum?

  • 2 days ago
  • 2 min read

Hver er besti koddinn?" og "þarf ég nýja dýnu?" eru meðal algengustu spurninga sem sjúkraþjálfarar fá.

Svarið veldur mörgum vonbrigðum: því miður er ekki til einn koddi eða ein dýna sem hentar öllum.

Það sem hentar einum getur valdið öðrum óþægindum. Líkaminn, svefnvenjur og tegund verkja skipta öllu máli.



Er vandamálið alltaf koddinn eða dýnan?

Þegar fólk vaknar með verki er eðlilegt að kenna koddanum eða dýnunni um. Stundum geta þau vissulega haft áhrif á svefngæði og þægindi.

En oft er myndin flóknari.

Háls- eða bakverkir geta einnig tengst álagi í vinnu, streitu, hreyfingu, fyrri meiðslum eða því hvernig líkaminn hefur verið notaður yfir daginn. Þess vegna er ekki alltaf hægt að leysa vandann með því að kaupa nýjan kodda.


Hvernig veit ég hvort koddinn hentar mér?

Frekar en að leita að "besta koddanum" getur verið gagnlegra að spyrja:

  • Vakna ég reglulega með verki sem minnka fljótlega eftir að ég fer á fætur?

  • Finnst mér erfitt að finna þægilega svefnstöðu?

  • Er koddinn of hár eða of lágur fyrir mína líkamsbyggingu?

Markmiðið er að hálsinn sé í sem eðlilegastri stöðu meðan þú sefur, en jafnframt að þér líði vel.


Hvað með dýnuna?

Það sama á við um dýnuna.

Mjög hörð dýna er ekki endilega betri en mjúk dýna og öfugt. Það sem skiptir mestu máli er að dýnan styðji líkamann þannig að hryggurinn haldist í sem eðlilegastri stöðu og að þú getir slakað á.


Hvernig er góð svefnstaða?

Það er ekki til ein svefnstaða sem hentar öllum. Almennt er þó æskilegt að háls og hryggur haldist í sem eðlilegastri og afslappaðri stöðu yfir nóttina.

Nokkur einföld atriði geta skipt máli:

  • Ef þú sefur á hliðinni er oft þörf á aðeins þykkari kodda svo bilið milli axlar og höfuðs fyllist og hálsinn haldist í beinni línu við hrygginn.

  • Ef þú sefur á bakinu hentar yfirleitt þynnri koddi sem heldur höfðinu í hlutlausri stöðu án þess að ýta því of mikið upp.

  • Ef þú sefur á hliðinni getur einnig verið þægilegt að hafa púða milli hnjánna. Það getur hjálpað til við að halda mjaðmagrind og mjóbaki í betri stöðu.

  • Sumum finnst einnig gott að styðja efri handlegginn á púða, sérstaklega ef þeir finna fyrir spennu í öxl, hálsi eða efra baki.

Mikilvægast er þó að þú vaknir almennt úthvíld(ur) og getir hreyft þig án þess að finna fyrir miklum verkjum eða stirðleika.


Hvenær er ástæða til að leita sér aðstoðar?

Ef þú hefur skipt um kodda eða dýnu án þess að verkirnir minnki, eða ef þú vaknar reglulega með verki sem hafa áhrif á daglegt líf, getur verið skynsamlegt að láta meta ástandið.

Sjúkraþjálfari getur hjálpað til við að meta hvort einkennin tengist líklegast svefnstöðu eða hvort aðrir þættir, eins og hreyfigeta, styrkur eða álag í daglegu lífi, séu líklegri skýring.

 
 

Sendu okkur skilaboð

Þú getur haft samband með því að nota formið hér til hliðar eða senda póst á elja@eljan.is

Einnig má hafa samband með því að hringja í síma 5340015.

bottom of page