Getur fjarsjúkraþjálfun hjálpað þér?
Elja sjúkraþjálfun býður nú upp á fjarsjúkraþjálfun fyrir einstaklinga um allt land. Fjarsjúkraþjálfun getur verið góður kostur fyrir þá sem eiga langt að sækja þjónustu, hafa takmarkað aðgengi að sjúkraþjálfara eða vilja fá faglega ráðgjöf og eftirfylgni án þess að þurfa að mæta á stofu.
Í fjarsjúkraþjálfun fer viðtal og meðferð fram í gegnum öruggt fjarviðtal. Sjúkraþjálfari fer yfir einkenni, sögu og markmið einstaklingsins og getur eftir því sem við á metið hreyfingu og færni í gegnum myndsamtal.
Stór hluti sjúkraþjálfunar snýst um að hjálpa einstaklingum að skilja einkenni sín og öðlast verkfæri til að takast á við þau. Í fjarviðtali er hægt að veita fræðslu og ráðgjöf, kenna æfingar og aðferðir til sjálfsmeðferðar og einkennameðhöndlunar og útbúa einstaklingsmiðaða æfingaáætlun. Með reglulegri eftirfylgni er síðan hægt að meta árangur og aðlaga meðferðina eftir þörfum.
Fjarsjúkraþjálfun hentar ekki öllum vandamálum og kemur ekki alltaf í stað meðferðar á stofu. Sjúkraþjálfari metur hverju sinni hvort fjarþjónusta henti og leiðbeinir um næstu skref ef þörf er á skoðun eða meðferð á staðnum.
Fjarsjúkraþjálfun hjá Elju fellur undir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt gildandi reglum um sjúkraþjálfun.
Með fjarsjúkraþjálfun viljum við auka aðgengi að faglegri sjúkraþjálfun og gera einstaklingum kleift að fá ráðgjöf, meðferð og eftirfylgni óháð búsetu.
Hægt er að bóka tíma í fjarsjúkraþjálfun hjá Elju með því að hafa samband í síma 534 0015, senda póst á elja@eljan.is eða í gegnum vefformið á heimasíðu okkar.




